Hjartans einlægni
Mjög góðar síður
04.07.2007 22:33:56 / thordistinna

Ertu þá farin ? :O)

 

 

   Jæja elskurnar ég er flutt með síðuna mína inn

á moggabloggið.  ég vona að ég gefi upp rétta

slóð; http://thordistinna.blog.is

 

  Hlakka til að sjá - heyra til ykkar þar :haha:

 

 

 

 

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

02.07.2007 20:40:08 / thordistinna

Haldreipi O)

 

 

 

   " When you get to the end of your rope, tie a knot, hang on and swing ! "

 

 

   Hæ og gleðilegt sumar :haha:

 

    Þessi speki er komin frá gjöf frá þeim eðalhjónum Þóri og Guðrúnu Erlu . Þetta kort fer pottþétt upp á vegg hjá mér.  Það var ekki nóg með að þau dekruðu við okkur allam tímann heldur leistu þau okkur út með gjöfum. Aldeilis ævintýralega gott fólk þar á ferð.  

   Við mæðgurnar höfum bóstaflega sofið frá því að við komum þangað til í dag og erum báðar mjög syfjaðar núna :lol:  Við fórum þó að heimsækja mömmu og pabba og mikið var það nú ljúft :) Ég þarf helst að sjá þau á hverjum degi og tala við þau allaveganna tvisvar á dag - enn litla barnið foreldra sinna:haha:  Heilsan hans pabba gamla er alls ekki nógu góð en hann tekur því með sínu jafnaðargeði eins og alltaf. Ég ætla enn að draga ykkur á ferðasögunni en aðeins að láta ykkur vita af mér.  Verð reyndar að láta eina góða með af Karen.  Hún er  reyndar eins og allir vita sem að hana þekkja  sagt endalausar fyndnar sögur af sér.  Við Karen erum þó sammála um það að hún lendi kannski ekki endilega oftar í fyndnum eða neyðarlegum uppákomum , en er kannski ein af fáum sem að hafa hugrekkið og húmorinn fyrir sjálfri sér að segja frá þeim:haha:  Hún er alveg frábær karakter og ég komst að því í þessari ferð að hún er frábær ferðafélagi.  En hér kemur sagan góða:  Við vorum komnar í íbúðina sem að var í sama húsi og Guðrún Erla og Þórir búa í og við vorum að undirbúa okkur fyrir að fara út að borða.  Fórum í bað og máluðum okkur og reyndum að gera okkur sætar og fínar.  Það var svo mikill lúxus í íbúðinni að við höfðum sitthvort baðherbergið.  Karen hafði verið bitin af moskítoflugum og var með sólarexem sem að fór versnandi og hafði keypt benedril til að slá á kláðann.   Nema hvað þegar að ég er að mála mig á baðherberginu MÍNU kemur Karen úr baðherberginu SÍNU og segir við mig ; þetta er nú alveg stórkostlegt og ég hvái- nú hvað heldurðu bara segir Karen, ég var að tannbursta mig og hugsaði með mér nú ég hef þá tekið tannkremið með mér frá hótelinu og bursta vel og vandlega og átta mig þá á því að ég var að bursta mig upp úr benedrilinu.Þetta sagði vinkona mín og heldur óskýrmælt enda dofin eftir deyfilyfið góða.  Það var hlegið mikið og er enn verið að hlægja :haha: :haha: :haha:  Ekki laust við að hún sé smá þvöglumælt ennþá ...:lol:

  Ég luma á nokkrum góðum og smá læði þeim inn...  :D

   Ég fer í lyfjagjöfina í fyrramálið og KR ætlar að hitta pabba sinn á meðan og kíkja á Lárus bróður en hann vinnur íi húsdýragarðinum í sumar, svo að það verður ábyggilega mikið fjör hjá þeim 8|.   Ég læt heyra í fljótlega - njótið veðurblíðunnar elskurnar:)

   Frænkur mínar Lovísa María og Sunna  eiga afmæli í dag - til hamingju með það elskurnar ;)

 


» 15 hafa sagt sína skoðun

30.06.2007 15:55:53 / thordistinna

Bakkabraedur- systur ;0)

 

 

 

   Jaeja elskurnar :O)

 

   'Eg sit her a hoteli i Eagan, uthverfi   i Minesota og er med utlenskt lyklabord svo thid afsakid malvillurnar. 

  Vid komum a vollinn i gaer og konan  thar var afar undrandi og sagdi okkur ad vid aettum ekki flug fyrr en deginum eftir = OMG !!! O) 

   Thad var ekki haegt ad troda okkur med svo ad eg pantadi bara hotel og forum svo ut ad borda og nuna aetlum vid i mallid og leyfa KR ad bua til bangsa og fara i legobud.

  Eg var med thad alveg a hreinu ad vid vaerum ad fara heim 30 en hvarfladi ekki ad mer ad kikja a dagatalid- aldrei a aevinni lent i odru eins- en thetta er bara fyndid og onnur tilraun gerd i dag til ad komast heim - en eg lofa engu - thad er aldrei ad vita hvaerju vid vinkonurnar tokum upp a .O)

   Vonandi hafid thid thad gott elskurnar.

  Betsu kvedjur fra
Eagens O)


» 19 hafa sagt sína skoðun

28.06.2007 16:38:51 / thordistinna

Gobbídígobb...::O)

 

 

   "Vertu ætíð jákvæður ; það er góð heilsubót ."


» 20 hafa sagt sína skoðun

25.06.2007 03:24:25 / thordistinna

Tívólí, tivólí tívolí,lí,lí

 

 

 

   Sæl verið þið :haha:

 

 

   Það er nú kominn tími á að gefa smá skýrslu .  Ég er búin að vera svo upptekin að njóta lífsins að ég hef ekki gefið mér tíma í að blogga.

Við erum búin að vera í algjöru dekri hérna.  Þórir er búin að keyra okkur fram og til baka og það er engu líkara en að það séu þjóðhöfðingjar á ferð.  Í gær fórum við í fjölskyldugarð þar sem að var söngleikur í gangi og fullt af leiktækjum sem að krakkarnir nutu sín í .  Þaðan keyrði hann okkur niður á "strönd" tilbúin strönd við vatn og þvílík fegurð maður minn 8|.  Krakkarnir voru ekkert smá glöð- við vorum ekki með nein sundföt en leyfðum þeim bara að æða útí- í buxunum og kjól- þau eru vatnsheld krakkarnir- það er aðalmálið.  Þau voru sko alveg að fíla þetta ;) Áður höfðum við farið út að borða á mexinkanskan veitingastað og það var sko alvöru- alvöru mexíkanar og maturinn ósvikinn og þjónustan og stemmning skemmtileg.  Og kostar skid og inge ting :haha:  Dagurinn okkar í dag var alveg meiriháttar líka.  Það var arkað snemma af stað og haldið  í Target og verslunargenin rifjuð upp með góðum árangri :haha:    Þórir náði í okkur enn og aftur og var haldið í  mall of a america.   Við fórum beinustu leið í sjávardýrasafn sem að  er á neðstu hæðinni. og ég verð að segja það að sem fullorðin manneskja var þetta upplifun fyrir mig.  Alveg meiriháttar gaman að sjá hákarlana og öll þessi furðudýr sem að þarna voru.  Síðan fengum við öll sömul að klappa hákörlum- ekki súrum heldur sprell lifandi og frískum :haha: Þeir syntu hring eftir hring í þar til gerðu kari og voru á stærð við ágætis kola- en hákarl engu að síður- þeir eru alveg ótrúlega mjúkir viðkomu8|   Þaðan fórum við í tívolíið og það var alveg meiriháttar gaman fyrir krakkana, virkilega fínt tívolí og KR á því að það væri mun skemmtilegra en í Köben.,  Það er alveg ótrúlega gaman fyrir snúlluna mína að hafa félagsskapin af Svönu og Gísla og hefur gjörbreytt ferðinni fyrir hana.  Við fórum svo að borða út á veitingastað sem að hermir eftir regnskóg og hangandi apar út um allt og hermt eftir þrumum og eldingum og það var fengið sér eldfjall í desert- lungnamjúk súkkulaðikaka, með ís og stjörnuljósi- bara flott :lol:  Stór og mikill dagur- dagar og mér finnst við hafa fengið miklu áorkað.  Ég þarf að gefa ykkur betri lýsingar seinna, ýmislegt spaugilegt komið upp á enda snillingar á ferð í að lenda í ýmsu og sjá spaugilegu hliðarnar á lífinu.  Karen hefur heldur betur slegið í gegn sem ferðafélagi og ég er mikið að velta fyrir mér hvernig ég geti réttlæt að ræna henni aftur í ferð :haha:

Á morgun er spáð yfir 35 stiga hita og við höfum ákveðið að taka daginn rólega.  Ætlum í dekurmatvörubúðina í bænum og kaupa okkur salat og fullt af berjum, vínbúðina og kaupa eitthvað frískandi og sleikja sólina og safna orku fyrir næstu barnaferð:D

   Hildur Sif vinkona mín lagðist inn á spítala í gær og mig langar til að biðja ykkur að hugsa fallega til hennar og minnast hennar í bænum ykkar.  Ég veit að hún er duglegust en hún þarf á aukaorku að halda núna

Bestu kveðjur frá Chanhassen


» 34 hafa sagt sína skoðun

22.06.2007 03:02:24 / thordistinna

Góðar fréttir :O)

 

 

 

    " Hvatningarorð hresir sálina eins og svalardrykkur í steikjandi sólarhita ".

 

   Jæja elskurnar !

 

   Ég hitti lækninn í dag og Þorvarður íslenski læknirinn var svo elskulegur að koma með og aðstoða mig í gegnum þetta viðtal- það fannst mér mjög mikil hjálp.  Hann gaf sér svo góðan tíma í að ræða við mig á eftir og það er óhætt að segja að þar er góður maður á ferð.  Sérfræðingar á Mayo eru sammála greiningunni heima að þetta sé lungnakrabbi og að hann sé kominn á stig 4.  Að það  sé ekki hægt að skera en að ég sé á réttri lyfjameðferð.  Eitlarnir undir höndunum virðast vera óbreyttir og æxlin í lungunum hafa minkað - frá 1.3 niður í 0.8 sem að er talsvert, sérstaklega þar sem að ég er bara búin með 3 skipti.  Þeim finnst að ég eigi að klára þessa meðferð og að henni lokinni að fá geislameðferð vegna holhöndinnar.  Svo ættu að líða 2-3 mánuir og þá yrði ég sett í tékk og ef að breyting væri til hins verra þá að byrja á nýjum lyfjum.  Það væru nokkur lyf sem að ég ætti eftir að prufa svo að við höfum einhver spil í hendi.,  Hitt væri annað mák að það væri ekki til nein lækning og að þetta yrði líklegast mitt banamein og þau vildu ekkert spá í neinn tíma.  En þau vildu meina að þessi tegund af krabba gætu hugsanlega byrjað sem  brjóstakrabbi , allir væru hins vegar sammála því að þetta væri lungnakrabbi en þó að það væri ekki nema 1 prósent líkur á að það væri hugsanlegt að þetta væri frá brjósti en ekki lunga vildu þau athuga það ,því að ég væri svo ung að þau vildu ekki taka neina sjénsa. Því að ef að upptök sín ættu sér stað í brjóstinu myndu líkurnar gjörbreytast og meðferðin allt önnur.  En ítrekuðu að þau væru alveg viss um að þetta væri lungnakrabbi.  Vilja engu að síður að þau athugi aftur eitilinn heima með þetta í huga og ég fer í brjóstamyndatöku hér í fyrramálið 7.15 takk fyrir :haha:.  Fer svo í viðtal aftur kl.11.30 og það er meira formsatriði til að staðfesta fyrri fréttir.  Ég verð að viðurkenna að mér brá svolítið mikið þegar að þau töluðu um þetta litla prósent, hvað það hefði getað breytt brjálæðislega miklu í stöðunni- en svona er þetta :$    Ég er alveg úrvinda og ætla að skrifa meira á morgun- læt ykkur vita meira hvað okkur fór á milli- en ég er Guði þakklát fyrir þetta.  Bara að allt hefði staðið í stað hefði verið gjöf- en þetta eru mjög góðar fréttir- takk fyrir allar fallegu kveðjurnar;)

 

  


» 56 hafa sagt sína skoðun

21.06.2007 16:59:17 / thordistinna

Biðin...

 

 

 

  " Láttu ekki áhyggjurnar ná tökum á þér.   Þá áttu lítið rúm eftir eftir fyrir jákvæðar hugsanir. "

 

 

   Jæja elskurnar, við sitjum hér og bíðum eftir að tíminn líði- ég fer í viðtalið klukkan 14.30.  ég fór bara í ct í gær og blóðprufu og ætla að bera það undir sérfræðinginn hvort að ég geti ekki fengið pet skannið, vil að sjálfsögðu fá sem mest út  úr þessari heimsókn hér á Mayo - maður er ekki hér á hverjum degi :haha:   Íslenski læknirinn tekur ekki á móti mér en mér var sagt í gær að ég fengi sérfræðing í lungnakrabbameini sem að væri mjög framarlega og virtur á sínu sviði- svo að það er bara gaman- enskan hlýtur að reddast- ég hef ekki neinar áhyggjur af því ;)

   Við Karen og Kolbrún mín fórum á Red lobbster og bókstaflega völdum okkur lifandi humar í soðið :haha:  Hún kom með hann á borðið til okkar alveg sprelllifandi og ég fékk að "klappa" honum :haha:

Við létum að sjálfsögðu taka mynd af viðburðinum og ég þarf að níðast á honum Þóri og biðja hann um kenna mér að setja myndirnar inn svo að við getum leyft ykkur að fylgjast með.  Við tókum sem sagt algjört dekur í gær og það var þessi líka stóri humar sem  að fór á diskinn okkar og svo önnur tegund til, sem að var minni og steyndauður fyrir og eftir :haha:  Þetta var alveg rosalega skemmtileg upplifun og ég hefði  ekki viljað missa af þessu - skemmtileg minning í bankann- en humarinn heima, litlu halarnir er svoo miklu betri- og Krissi ef þú lest þetta þá var humarinn í útskriftinni ofarlega í huga í gær og þessi máltíð bliknaði samnborið við hvítlauksristuðu halana sem að voru fullkomlega steiktir í veislunni góðu ;).  En kvöldið var frábært , þjónustan algjörlega einstök og gestir staðarins tóku virkan þátt í þegar að humarinn okkar heilsaði upp á okkur- þvílík stemmning- maður minn :haha:  Ég er viss um að þessi minning lifir lengi hjá okkur.

   Það var alveg brjálað veður hér í nótt og þrumur og eldingar.  Það voru viðvaranir vegna veðurs og voða læti í fréttunum en ég var nú ekki alveg viss um var þaðátti að vera verst og hvort að það ætti að ná hingað enda sauðvitlaus í landafræði :haha:  En þetta truflaði nætursvefninn minn miið og ég svaf mjög laust og var alltaf að vakna vi þrumur og miklar eldingar.  Þess á milli dreymdi mig illa, var komin í viðtal niður á Mayo og ekkert nema leiðinlegar fréttir.  En svona starfar hugurinn, undirmeðvitundin að fá útrás sjálfsagt fyrir undirliggjandi kvíða.  En fari það sem að fara vill og komi það sem að koma vill.   Ég er þreytt eftir nóttina og tæp í geðinu út af steranotkun og ákvað að hætta henni í morgun, vil frekar vera orkuminni heldur en að vera að skamma dottluna mína út af engu- því hún er ekkert smá dugleg;) 

  En núna ætlum við að fara upp á Mayo þar eru endalausir möguleikar, hægt að fá bækur og fróðleik og fyrirlestra sem að eru ekki á hverju horni heima.  Stefna að því að taka með heim fullt af gögnum til að reyna að miðla áfram.   En nú ætla ég að kveðja í bili- læt ykkur vita eins fljótt og ég get- takk fyrir allt og allt :D                    


» 35 hafa sagt sína skoðun

20.06.2007 02:06:31 / thordistinna

Rochester - við erum mættar ;O)

 

 

 

   "Vináttan er gagnkvæm, hún orkar á báða aðila.  Það þarf bæði að gefa hana og þyggja. "

 

  Við lentum í gær sælar og sérstaklega ánægðar með alla þjónustu um borð í vélinni.  Vi ð vorum í algjörum prinnsessuleik :haha:  Þórir, Gísli og Svana sóttu okkur upp á völl og brunuðu með okkur beinustu leið heim til þeirra í matarboð, inverskan kjúklingarétt, hvítt og rautt-  slurpí slurp- það var ekkert smá gott.  Við hittum fjölskylduna í fyrsta skiptið í gær en það var svona tilfinning eins og að hitta gamla vini- þau eru ekkert venjuleg og mér finnst það bara slgjör upplifun að hitta þau.  Guðrún Erla var búin að panta fyrir okkur í fótsnyrtingu í morgun og græðgin í okkur Karen varð svo mikil að við fengum okkur handstyrtingu líka- engar smá skvísur :haha:  Það var ekkert smá góð stund sem að við áttum þarna og frábær hugmynd hjá Guðrúnu Erlu að koma okkur svona á óvart.  Á meðan var KR með börnunum þeirra og Þóri í sundlauginni heima hjá þeim og við komum svo við í ofboðslega flottri matvöruverslun og versluðum í matinn, pasta, ávexti,ber og allskonar gúmmelaði- jamm líka kökur- það var sko tekið vel á því :haha:  Að því loknu keyrði Þórir okkur upp í Rochester þar sem að Mayo er og við sem að tekur hátt í tvo tíma og svo þurfti hann greyjið auðvitað að fara til baka og var eiginlega kominn í tímaþröng því að hann var að fara að þjálfa krakka í fótbolta- alveg ótrúlegur orkubolti þar á ferð.  Það er engin smá lúxus að vera lóðsaður í gegnum þetta ferli allt saman.  Við vorum að tala um það hversu flókið það hefði verið að fara í gegnum allt þetta ferli án nokkurar hjálpar, skipulagningin hefði þurft að vera alveg gríðarleg og allt hefði tekið miklu lengri tíma og bara þessi óvissa  með allt,  Ég hafði t.d. verið að skoða hótel sem að voru næstum því helmingi dýrari en vegna Þóris fann hann mun ódýrari hótel en engu að síður í göngufæri við Mayo- við erum svona 2-3 mínútur að rölta.  Ég skráði mig inn á Mayo í dag og það var sko engin Landsspítalalykt þar :haha:   Okkur leið frekar eins og við værum að labba inn á lúxus hótel en ekki clinic;)  Hvað sem að þessi ferð leiðir af sér þá er þetta óútskýranleg tilfinning að vera komin hingað.  Og í hjartanu mínu er ég svo glöð og þakklát að hafa þetta tækifæri.  Ég er að upplifa hamingju í miðjum harmleik- skrítið og erfitt að reyna að útskýra það - en þannig er það ;)

  Karen vinkona er aldeilis frábær ferðafélagi og mér þykir svo mikið gaman að vera kynnast henni á nýjan máta - og við eigum sko bara eftir að njóta okkur saman - hún er með svo mikið góða og þægilega nærveru og er okkur mæðgum mikill stuðningur;)  Við örkuðum niður á næstu horn við hótelið og fórum á stað sem að heitir Red Lobbster og nammi namm, aftur og enn og við erum eiginlega ákveðnar í að fara aftur á morgun eða hinn, láta setja aumingjans humarinn sprelllifandi ofan í vatnið og skola honum niður með góðu hvítvínu eða kampavíni-  algjörir sælkerar áferð:haha: 

   En ég er núna fastandi og fer í allar rannsóknir á morgun, blóðprufur og ct- Þórir og frú spurðu mig hvort að ég færi í  pet - scan en það væri gaman ef ég gæti það , mér skilst að þá sjáist meinvörp líka, eitthvað sem að er ekki í boði heima.  Auðvitað er það svolítið taugatrekkjandi en spennandi að vita til þess að vera með bestu hugsanlega læknisþjónustu og tækni sem að völ er á.  Það hlýtur að opna einhverja möguleika, ég á við ef að þeir eru til þá hlýtur það að vera á svona stöðum :).   En eins og ég hef sagt þá ætla ég bara að bíða róleg eftir niðurstöðunum og ekki gera mér of miklar væntingar- láta þá frekar koma mér skemmtilega á óvart ;)

Á fimmtudeginum fer ég svo í viðtal og fæ niðurstöður og ég læt ykkur vita vonandi fljótt elskurnar, en þið megið ekki gleyma tímamismunum svo að það gæti orðið einhver smá bið.

  Ég er hins vegar orðin svo úrvinda núna að það er eins og að ég sé komin á sjötta glas (hvernig sem a það var nú aftur ??? :haha:.  Stafsetningarvillur í hverju horni og ég veit varla hvað ég er farin að segja svo að ég ætla að stoppa nú - takk fyrir allar sætu kveðjurnar- takk fyrir þetta tækifæri öllsömul - takk fyrir hvað þið gefið mér mikið með öllum hvatningarorðum ykkar og stuðningi  -  knús á línuna og munið að vera góð hvort við annað.

 

P.s.  Sirrý mín ef þú lest þetta og Diddi þá langar mig svo mikið að segja ykkur að ég hugsa mikið til ykkar og langar endilega að heyra í ykkur sem fyrst þegar að við komum heim- er komin með síma í lag hér úti- svo að kannski að maður bara sms-i frá bandarísku sveitinni

 

 


» 62 hafa sagt sína skoðun

18.06.2007 03:22:04 / thordistinna

Við erum að koma Ameríka ...:O)

 

 

 

 Hæ elskurnar ;)

 

   Ég held bara að það sé alveg svakalega langt síðan að ég hef verið svona þreytt, en ég var bara ekki búin að undirbúa mig nógu vel fyrir ferðina, en held að þetta sé komið nóg í bili :haha:   Eftir lyfjagjöfina á fimmtudeginum fór orkan mín eiginlega alveg niður í kjallara og verkefnin hrúguðust einhvern veginn upp á mig næstu þrjá daga og svo hef ég lent í smá vandræðum með svefn vegna stera áhrifa.  Ég vona bara að ég nái að sofa í vélinni og ná upp orku :$

  Ég hreinlega verð að kasta á ykkur kveðju áður en að við förum -  ég væri ekki að fara nema fyrir tilstilli Þóris Þórissonar- það var hann sem að stakk upp á þessu upprunalega.  Ég hef aldrei séð hann eða konuna hans né börn.  Hann sækir okkur upp á flugvölll, keyrir okkur fram og til baka á milli þeirra gististaða sem að við þurfum að vera á, búin að útvega okkur öll þau hótel og gistirými sem að við þurfum  og býðst til að vera með mér til aðstoðar upp á spítala ef að ég þarf.  Þetta er alveg einstakt og greinilega engin venjuleg fjölskylda á ferð.  Ef að þið hafið ekki kíkt á bloggið hans endilega gerið það -það er hrein snilld, hann er hér hér til hliðar á síðunni.

   Ég verð að enda núna því að líkaminn er úrvinda- en ég barasta verð að þakka ykkur öllum stuðninginn, andlegan sem veraldlega- ég hefði aldrei getað þetta án ykkar.  Fyrir það verð ég endanlega þakklát.  Ég hef notið ótrúlegs stuðning og mig langar til að lauma að þakklæti til Icelandair fyrir  mikla og góða velvild.  Og Lína þú ert perla ;)  Ég er ákveðin í því að þetta verði skemmtiferð og beinustu leið í góða minningarbankann okkar KR og það sem að meira er þá fáum við að njóta félagsskapar okkar góðu vinkonu Karenar og ég er alveg fullvis um það að hún er góður ferðafélagi ;)

  Ég tek tölvuna með og blogga- kanski ekki eins reglulega- við sjáum til en leyfi ykkur að fylgjast með fréttum um leið og þær berast og að ég treysti mér til ;)

  Knús á línuna:haha:


» 34 hafa sagt sína skoðun

15.06.2007 00:41:38 / thordistinna

Miskunarleysi ! ! !

 

 

 

Ég get ekki orða bundist - ég var að lesa nýja athugasemd hjá dóttur minni og það var þvílíkt dónaleg og ljót athugasemd að  ég efa að það finnist hjarta í þeim aðila sem að skrifaði þetta.  Ég veit að ég gef svona vitleysingum ( afsakið orðbragðið ) færi á mér með því að opna inn í veröld mína en dóttir mín er bara 8 ára gömul og er að ganga í gegnum erfiðustu reynslu lífs síns og er ótrúlega dugleg svo að það skal sko engin voga sér að ráðast svona á dóttur mína - ef að þú verður að fá útrás fyrir vanlíðan þína þá skaltu díla við mig - en þú ert kannski svo mikil gunga að þú getur bara tæklað minnimáttar.   Já ég er reið og nota stór orð því að hún er bara saklaust lítið barn.  En kannski er bara það besta sem að ég get gert fyrir þig er að minnast þín í bænum mínum því að líðan þín hlýtur að vera skelfileg að ráðast svona að 8 ára barni sem að  á mjög erfitt ! ! !

 

  


» 40 hafa sagt sína skoðun

14.06.2007 19:52:52 / thordistinna

"Garðrækt " :O)

 

 

 

" Hugur þinn er eins og garður.  Hlúðu vel að honum með því að fylla hann af jákvæðum hugsunum sem styrkja trú þína."

 

 

  Hæ, hó :haha:

 

   Ég fór í lyfjagjöf í dag, ég átti að fara á þríðjudaginn en fékk að skrópa og njóta sólarinnar enda ekki oft sem að hún hefur skinið mikið hér undanfarið :haha: 8).  Ég hef það ágætt en finn að ég er mjög þreytt og með höfuðverk og smá verki í skrokknum svo að ég ætti að fara að hvíla mig fljótlega til að safna orku og hvíla skrokkinn ;)

   Á mánudaginn fylgdi ég vinkonu minni henni Ástu Lovísu til grafar það var erfitt en mjög falleg athöfn.  Það var þoka um morguninn en þegar að hún var jarðsett þá skein sólin og það var nánast logn.  Mér þótti mikið vænt um hversu fallegt veður var þennan dag.  Mér finnst svolítið óraunverulegt að hún sé farin og  finnst alltaf eins og ég gæti átt von á símtali frá henni.

En ég veit að hún er bara hinum megin við hornið og er ábyggilega alveg á fullu að reyna að aðstoða okkur eins og hún gerði hérna meginn.

   Ég og Kolbrún Ragnheiður mín erum að fara til Minnisota á mánudaginn og Karen vinkona kemur með ,okkur til halds og trausts.  Ég á tíma á miðvikudag og fimmtudag og hugsanlega á fimmtudaginn.  Mér finnst hálffyndið að ég fer út með sýni af eitlinum sem að var tekinn úr mér í október, svo að ég er eiginlega að ferðast með eitilinn úr mér- sumir úr fjölskyldunni hafa sagt yyaaaykk en mér finnst þetta bara hálf fyndið- enda ekki alveg eins og að fólk er flest :haha:  Ég er ykkur öllum svo mikið þakklát fyrir að hafa gert mér kleift að fara út.  Ég er hins vegar ákveðin í því að við erum að fara í skemmtiferð, við erum að fara í tívólí, skemmtigarða og njóta lífsins í hitanum. Ef að eitthvað jákvætt kermur út úr ferð minni til Mayo þá er það yndislegst en ég þori ekki að gera mér of miklar vonir, vil ekki verða fyrir skell þarna úti - veit ekki hvernig það færi í mig - svo að ég býst við því versta  en vona það besta.

   Mig langar að skrifa svo miklu meira enda alltaf haft munninn fyrir neðan nefið en hef ekki meiri orku í bili.  Ég kem til með að hafa tölvuna með mér - get ekki hugsað mér að vera án ykkar í tólf daga-  á morgun er brjálaður undirbúningur í gangi svo að ég sé til hvort að ég bloggi annað kvöld :D

  Aðeins eitt í lokin - mig langar svo mikið til að biðja ykkur um að biðja fyrir Þuríði Örnu -  það er alls ekki nógu gott ástand þar - svo að sameinumst í bæn, fallegum hugsunum, kveikjum á kertum - hvaða leiðir sem að við förum að því að reyna að styrkja hana og fjölskylduna - bara þá leið sem að við trúum að virki.

  Kærar kveðjur úr Grænukinninni :haha:


» 17 hafa sagt sína skoðun

11.06.2007 22:46:58 / thordistinna

krabbi rabbi ogmamma mín!!!!

maður er ljós sem lifir. ;) En mamma mín er með krabba rabba . :cry::cry: Og maður lifir og deyr maður lifir og deyr þegar ljósið kemur. :$:cry: Og nóttin kemur en þegar ég er að fara að sofa þá sit ég og syng um mömmu mína sem er ljósið mitt og lífið mitt...;):D:lol:

bæn

mamma mín er fallegust í lífinu mínu.  ef góður Guð vill vera að hjálpa þér. :lol::);):D þú ert mín fegurð...Amen...:D:haha:

kolbrún samdi þessa bæn og ljóð...  amen         

 

 


» 31 hafa sagt sína skoðun

08.06.2007 12:48:18 / thordistinna

Helgarfrí ;O)

 

 

 

   "Glatt hjarta veitir góða heilsubót en dapurt geð veikir þig og dregur úr þér kjarkinn. "

 

   Hæ elskurnar !

  Ég var á mögnuðum fyrirlestri í gær með Jane Plant,Kristínu Völu og fleiru góðu fólki í Háskólabíói í gær.  Ég frekjan stökk á fyrirlesarana og varð mér út um smá viðtal við Jane Plant eftir fyrirlesturinn með von um að hún gæti leiðbeint mér eitthvað sérstaklega :haha:.  En hún var mjög hreinskilin við mig ( kostur í fari fólks sem að ég kann að meta) og sagði að hennar leiðbeiningar hafi ekki verið að hjálpa lungnakrabbameini, hún hafi verið að sjá ótrúlega hluti en ekki hjá fólki með lungnakrabba :whut:.  Sagði mér engu að síður að ef að ég ætlaði að fylgja hennar kerfi að fara alla leið og taka það mjög bókstaflega- sem að ég ætla að gera.  Ég hugsaði með mér að nú væri þá bara komin enn ein manneskjan sem að ég yrði að koma á óvart með bata mínum - því að hann skal koma - mun koma ! ;)

   Ég fór á miðvikudeginum á námskeið inn á endurhæfingardeild, svona snyrtivörunámskeið og nú  brosa þeir sem að mig þekkja því að ég er soddan brussutípa :D.  Þetta var í boði þeirra sem að flytja inn Clinique og Estee Lauder og þetta var mjög skemmtilegt og leiðbeinendurnir sérstaklega góðir og ekki í neinum stellingum:D  Við fengum fullan poka af snyrtivörum og það ekki neinar prufur heldur alvöru stærðir.  Við fengum nakklalökk, gloss, varalit, make,varalitablýant, augnskugga, augnabrúnalit,maskara, handáburð, skrubb, andlitshreinsi, augnhreinsi, dagkrem, augnkrem og ég gleymi ábyggilega einhverju þetta var svo mikið. Alveg rosalega rausnarlegt og flott hjá þeim.  Ég saknaði þess að hafa ekki Ástuna mína með mér, veit að hún hafði notið sín í botn þarna :lol:

   Í vikunni lést önnur hetja, hún Lóa blómarós.  Ég hafði aldrei hitt hana en fylgist með henni á blogginu hennar daglega og hún gaf mér mikið með skrifunum sínum.  Þetta er svona eins og nokkurs konar bloggfjölskylda sem að maður tilheyrir og við erum eins og aðrir krabbameinssjúklingar, ekkert frábrugnir þeim nema að við höfum ákveðið að fjalla um okkar göngu í bloggheimum.  Bæði til að auðvelda vinum okkar aðgang að upplýsingum og til að veita hugsanlega öðrum styrk og ekki síður til að sækja styrk. Lóa var ein af þeim sem að ég sótti styrk til því að þrátt fyrir ungan aldur hafði hún greinilega til að bera sterkan karakter, jákvæð með eindæmum og hafði sýn á lífið sem að flestum dreymir um en skortir oft þroska til, þar með talið ég :lol:  Ég sendi fjölskyldu hennar og vinum hennar innilegustu samúðarkveðjur- blessuð sé minning hennar.

  Ég hef ekki skrifað í nokkra daga eiginlega út af því að ég hef barasta verið orðlaus.  Þessi vika hefur einkennst af góðverkum svo að ekki sé dýpra í árina tekið.  Góð vinkona Ástu Lovísu gaf okkur mæðgunum ótrúlegan hlut í minningu hennar.  Ég veit ekki hvort að hún kæri sig um að ég geri þetta opinbert en mest af öllu langar mig að stökkva upp á pall og kalla yfir alla hvað hún gerði fyrir okkur- þvlíkt og annað eins !!!:haha:  Ég er svo endalaust hissa þessa dagana og finnst eins og að ég sé umvafin englum :lol: Þessi manneskja er sú óeigingjarnasta sem að ég hef hitt og ótúlega falleg sál - ég held að mér sé óhætt að segja að rausnarlegri manneskju sé erfitt að finna ;)

   Ég hef líka kynnst vinkonu Ástu Lovísu sem að heitir Sirrý, við hittumst fyrst innn á líknardeild og ég verð að segja að þar er perla á ferð.  Hún er svo heilsteypt, hreinskilin og góð manneskja.  Eina sem að ég er hrædd um að hún hugsi ekki nóg um sig sjálfa -  maður má nefnilega ekki gleyma sjálfum sér ;)

  Svona eru einhvern veginn dagarnir mínir, uppfullir af góðmennsku annarra, líf mitt er svo ótrúlega jákvætt að það liggur við að maður gleymi því að maður er með krabba rabba :haha:

  Ég er búin að taka smá ákvörðun fyrir mig og dóttur mína og hef ákveðið að tala um það hér svo að það komist örugglega til skila.  Mér finnst ekki líða sá dagur sem að ég tala ekki um krabbamein.  Vissulega er þetta stór partur af tilveru minni og mér ekki feimnismál að neinu leiti.  EN við þurfum líka að lifa lífinu eins eðlilega og hægt er þrátt fyrir sjúkdóminn og ég hef því ákveðið að um helgar erum við í helgarfríi frá krabbameinstali :haha: Þannig að ef að þið viljið tala við mig um sjúkdóminn ekki hika við það alla virka daga en um helgar vil ég bara vera eins og þið hin laus við allar heimsins áhyggjur og tala bara um allt annað en krabbamein.  Mér finnst tilvera Kolbrúnar minnar snúast allt of mikið um þetta og það er mikið álag fyrir hana að þurfa að hlusta á mig endurtaka jafnvel sömu hlutina aftur og aftur, mig langar svo mikið að hún nái að kúpla sig aðeins út úr þessu sorglega ferli og fá að vera áhyggjulaus átta ára gömul stelpa ;) Og svo hefur sú gamla líka bara gott af þessu -  held ég :D.  Ég vona að þið skiljið mig og gerið ykkur grein fyrir því að mér þykir alveg jafn vænt um ykkur og vanalega og ykkar stuðning.

 Vonandi verður helgin ykkur góð

Með bestu kveðju frá Þórdísi tinnu sem að er komin í helgarfrí :haha: :haha:

 


» 30 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 20:07:59 / thordistinna

Náungakærleikur

 


   "Opnaðu hjarta þitt fyrir öðrum.  Gerðu það að reglu í lífinu að gera eitthvað óeigingjarnt á hverjum degi og treystu því að Guð mun endurgjalda þér góðverkið ".


   Þetta kom upp í dagatalinu mínu í dag og er eiginlega táknrænt því að í dag þá voru hjón sem að gerðu einstaklega óeigingjarnt góðverk - fyrir mig og dótttur mína.   Ég hitti konu á föstudeginum í útskriftarveislunni sem að ég þekki ekki neitt, hef afgreitt hana stundum upp í MC - Planet að öðru leiti mér alveg ókunn.  Hún hringdi í mig í dag og spurði hvort að hún mætti koma til mín og ég sagði að það væri í lagi en að hér væri allt upp í loft vegna flutnnga svo að ég var hálfvandræðaleg yfir draslinu. Ég hélt að hún vildi spjalla eitthvað við mig og datt í hug að hún tengdist einhverjum með krabbamein og vildi kannski fá að spjalla og ég hugsaði með mér að það væri gott ef að að það væri hægt að hafa eitthvað gagn af mér :haha:. En hún sló mig alveg út af laginu, hún og maðurinn hennar höfðu ákveðið að styrkja okkur mæðgurnar fjárhagslega og það ekkert smá rausnarlega.  Ég veit ekki hvort að þau kæri sig um að um þau sé talað hér en ég get bara ekki orða bundist þó svo að ég nafngreini þau ekki. Ég er búin að vera máttlaus í dag og það láku meira að segja tár niður kinnarnar svo hrærð var ég.  Ég get ekki annað sagt en Guð veri með þeim.  Annars er það með einsdæmum fallegt hversu vel fólk hefur staðið við bakið á mér og ég fæ seint fullþakkað hvað þið hafið létt okkur sporin.
   Laugardagskvöldið var alveg rosalega flott, maturinn var mjög góður og spennandi réttir og mjög gott vín veitt með réttunum.   Skemmtiatriðin voru að sjálfsögðu meiriháttar skemmtileg og gaman að njóta kvöldsins með þessum elskum. Þetta var mjög flott kvöld og Sportís getur verið meira en stolt  af kvöldinu.
  Við fórum á Bubba á Sunnudagskvöldinu og hann var einn með kassagítarinn og flutti ný lög í bland við gömul.  Ég var mjög sátt við hann og gat ekki annað en fundist gaman af því, að mér sem að finnst svo stutt síðan að ég var unglingur að drekka í mig hvern tón frá honum en sat nú með að verða níu ára gamallri dóttur minni sem að naut tónleikanna ekki síður en ég :haha:.
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í kvöld ég er enn hálf lömuð eftir góðverk dagsins- þvílíkur náungakærleikur og  svo fallegt hjartalag að ég hef sjaldan kynnst öðru eins-  ég vona að Guð gefi mér tækifæri á að launa þetta einhvern veginn tilbaka....,.

 


» 27 hafa sagt sína skoðun

02.06.2007 11:33:26 / thordistinna

Brosum og föðmumst ;O)

 

 

   Ef þú getur ekki farið gegnum fjallið skaltu fara umhverfis það.  Ef þú getur ekki farið kringum fjallið skaltu klífa það.  Ef þú getur ekki klifið það sestu niður og hugleiddu hvort að það borgi sig að skoða það sem að er hinum megin.  Ef svo er byrjaðu að grafa göng .""
 

   Góðan daginn öllsömul. 

   Ég er aðallega að láta vita af mér.
  Við fórum í yndislega útskriftarveislu í gær til mentorsins hennar KR hennar Evu sætu ;)  .Veislan var haldin heima hjá henni og foreldrum hennar og það var alveg ofboðslegar flottar heimatilbúnar tapas snittur. Krissi pabbi hennar grillaði humar og  ég held bara að ég hafi aldrei fengið eins fullkomlega grillaðan humar, yndislega safaríkur og góður eins og reyndar allt var þarna- veisla upp á tíu- og note bene eins og þeir sem að mig þekkja vita að ég er  "píkkí" eftir 17 ár í veitingabransanum :haha:.
   Eftir veisluna hafði mín góða vinkona, hún Begga mín boðið mér á afmælisfögnuð Flensborgarskóla ásamt Rönku dóttur sinni og vinkonu minni og ég skrölti þetta með þeim.  Ég var orðin frekar þreytt því að úthaldið er svolítið eins og hjá 40 ára eldri manneskju en mikið var þetta gaman :haha:.  Skemmtilegt að hitta fólk sem að maður jafnvel sér aldrei og í besta falli stundum og allir svona í ljómandi skapi og stemmningin skemmtileg :D.  Ég hefði þó gjarnan viljað vera lengur því að þegar að ég var að fara þá voru ansi margir að koma sem að ég hefði gjarnan viljað spjalla við lengur.  En þetta var mjög góð kvöldstund og Begga mín þú átt heiður skilið fyrir að hafa boðið mér- takk fyrir kvöldið elskurnar :lol:.

  Í dag er Sportís með árshátíð og þau eru svo ótrúlega góð mig að ég fylgi alltaf með þrátt fyrir að hafa verið frá, frá  því í oktober. Ég er svona eins og lukkudýr eða súkkulaðikleina, vinn ekki neitt en fæ samt bónusinn :haha:   Þau byrja á því að grilla í hádeginu og fara svo að æða áfram á fjórhjólum ohhh hvað ég öfunda þau og væri svooo mikið til í að fara með en er hrædd um að ég verði að virða mörk mín og láta það duga að fara út að borða með þeim í kvöld svo að ég verði nú í standi.  OOhhhh þetta verður bara gaman :D
  Á morgun förum við mæðgurnar ásamt heilum hóp af frænkum og frændum á Bubba tónleika niður í Bæjarbíói og er þar með gamall draumur að rætast hjá krökkunum og mikið vona ég að það lukkist vel ;).
  Þannig að ég verð líklegast ekki mikið að skrifa um helgina en gat ekki hugsað mér annað en að kasta á ykkur smá kveðju, svo að það er sko miklu meira en í lagi með mig.  Lyfjagjöfin sem að ég fékk núna var bara með öðru lyfinu og mér
 líður svo mikið betur en eftir hina, ég var reyndar mjög lasin þegar að ég fór í gjöfina og var læknirinn að hugsa um að sleppa gjöfinni en ég tók það ekki í mál- sem betur fer því að það var bara fyrsti sólarhringurinn, rúmlega og nú er ég bara þakklát fyrir að það lítur allt út fyrir að ég geti haldið prógramminu 8|.  Það er nefnilega ekkert sjálfgefið í lífinu :haha:.
  Ég vona að helgin verði ykkur góð og munið að njóta hvors annars og verið góð hvort við annað- við erum svo miklu ríkari en við gerum okkur grein fyrir ;).

Knús og kossar á línuna :lol:  


» 16 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Klukkan
Dagsetning
10. febrúar 2012
RSS tengill